Markmið: Að þátttakendur öðlist dýpri þekkingu á umönnun aldraðra
Lýsing: Fjallað verður um öldrunarbreytingar og helstu einkenni og líðan hjá langveikum öldruðum. Farið verður í breytingar á þjónustu til langveikra í takt við þróun samfélagsins sem og þætti sem hafa áhrif á heilsufar og líðan þessa hóps og megináhersla lögð á virkni, byltur og verki.
Leiðbeinandi: Hlíf Guðmundsdóttir sérfræðingur í hjúkrun aldraðra, Guðrún Dóra Guðmansdóttir sérfræðingur í hjúkrun aldraðra, Sigrún Bjartmarz sérfræðingur í hjúkrun aldraðra, Sigrún Huld Þorgrímsdóttir hjúkrunarfræðingur MS.