Námskeið fyrir þau sem vilja taka stöðuna í lífinu, velta fyrir sér styrkleikum og draumum og spá í framhaldið.
Stendur þú á krossgötum og/eða ert að velta fyrir þér hvað er næst í lífinu? Er ástæða til að staldra við og skoða hvaða möguleika framtíðin ber í skauti sér?
Námskeiðinu er ætlað að styðja þá sem finna hjá sér þörf eða löngun til að vega og meta styrkleika sína og langanir, með það fyrir augum að þátttakendur skoði markmið sín og íhugi næstu skref.
Fléttaðar eru saman ýmsar aðferðir úr sálfræði (sérstaklega jákvæðri sálfræði), náms- og starfsráðjöf og verkefnastjórnun allt með það að markmiði að þátttakendur fái sem mest út úr eigin sjálfskoðun.
Námskeiðið er í 6 lotum:
Segja má að námskeiðið sé ferðalag þar sem þátttakendur fara í sjálfskoðun og gera áætlun um næstu skref í lífinu, annað hvort stór eða smá. Tvær lotur eru í hvert sinn og því nauðsynlegt að þátttakendur mæti í alla tímana.
Tími: Mánudagar 17., 24. og 31. mars, kl. 17:00-20:00.
Staður: Framvegis, Borgartún 20, 3.hæð.
Leiðbeinandi: Helga Tryggvadóttir, náms- og starfsráðgjafi og verkefnastjóri með diploma í hugrænni atferlismeðferð, jákvæðri sálfræði og verkefnastjórnun.
Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.
Afar gott námskeið sem mætti jafnvel vera lenga.
-
Frábært námskeið, mjög áhugavert. Mæli með því. Takk fyrir mig :)
-
Afar gott námskeið sem mætti jafnvel vera lenga.
-
Frábært námskeið, mjög áhugavert. Mæli með því. Takk fyrir mig :)
-
Afar gott námskeið sem mætti jafnvel vera lenga.
-
Frábært námskeið, mjög áhugavert. Mæli með því. Takk fyrir mig :)
-