Flokkar: Gott að vita

Páskaeggjagerð - tvö námskeið

Enn og aftur bjóðum við upp á þessi vinsælu páskaeggjanámskeið.

Þátttakendur læra að tempra ekta ljóst súkkulaði og búa til páskaegg. 

Allt hráefni fyrir í páskaeggjagerðina er innifalið fyrir utan það sem þátttakendur vilja setja inn í páskaeggið. Þátttakendur þurfa því að hafa með sér: nammi eða glaðning (t.d hring), málshætti/orðsendingu sem á að vera inn í eggjunum. Gott er að miða við eitthvað létt nammi eins og Freyju Hrís eða annað sambærilegt.

Einnig er gott að mæta með svuntu og ílát undir páskaeggið. 

https://www.facebook.com/konfektnamskeid/

Boðið er upp á tvö námskeið sama daginn:

Dagsetning: Miðvikudagur 19. mars

Námskeið 1 kl. 17:00-19:00

Námskeið 2 kl. 19:15-21:15

Leiðbeinandi: Halldór Kr. Sigurðsson bakari og konditor. Hann hefur í fjölda ára kennt áhugasömum að búa til dýrindis konfekt, kransakökur og páskaegg.

Athugið að þessi viðburður er einungis fyrir félagsfólk Sameykis.

Flokkar: Gott að vita