Þetta námskeið er ætlað þeim sem lokið hafa Íslenska 3 (A2.1) eða sambærilegu námskeiði.
Á námskeiðinu bæta þátttakendur við eigin við hæfni í að nota íslensku í samtölum og rituðu máli.
Til dæmis þegar þau:
- fylgjast með fréttum bæði rituðum og lesnum
- horfa eða hlusta á þætti um samtímamálefni
- fylgja leiðbeiningum bæði eftir leiðsögn og texta
-segja frá atburðum í þátíð og framtíð
Þegar hingað er komið í íslenskunáminu er lögð áhersla á aukinn orðaforða og málfræði fær aukið vægi.
Áfram verður unnið með aukna færni í samtölum og ritun einfaldra texta. Hægt en örugglega öðlast þátttakendur færni til að takast á við flóknari daglegar aðstæður á íslensku.
Í náminu nýtir þú þér snjallsíma, internetið og ýmis öpp til að gera námið fjölbreyttara.
Til að ljúka námskeiðum þarf mæting að vera lágmark 75%.
Stöðumat verður í lok námskeiðs.
Forkröfur: Hafa lokið íslensku 3 eða búa yfir sambærilegri hæfni.
Lengd: 40 klst.
Verð: 55.700 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.
Tímasetningar: Þriðjudaga og fimmtudaga frá kl. 17:30-19:30.
Hvenær: 14.janúar -20.mars 2025.
Nánari upplýsingar: Hjá Katrínu katrin@framvegis.is eða í síma 581 1900.