Flokkar: Íslenska sem annað mál

Íslenska 4 - Æfingin skapar meistarann (A2.2). Fyrir Úkraínufólk. Staðnám.

Þetta námskeið er ætlað þeim sem lokið hafa Íslenska 3 (A2.1) eða sambærilegu námskeiði.

Á námskeiðinu bæta þátttakendur við eigin við hæfni í að nota íslensku í samtölum og rituðu máli.

Til dæmis þegar þau:

  • fylgjast með fréttum bæði rituðum og lesnum
  • horfa eða hlusta á þætti um samtímamálefni
  • fylgja leiðbeiningum bæði eftir leiðsögn og texta
  • segja frá atburðum í þátíð og framtíð

Þegar hingað er komið í íslenskunáminu er lögð áhersla á aukinn orðaforða og málfræði fær aukið vægi.

Áfram verður unnið með aukna færni í samtölum og ritun einfaldra texta. Hægt en örugglega öðlast þátttakendur færni til að takast á við flóknari daglegar aðstæður á íslensku.

Í náminu nýtir þú þér snjallsíma, internetið og ýmis öpp til að gera námið fjölbreyttara.

Til að ljúka námskeiðum þarf mæting að vera lágmark 75%.

Stöðumat verður í lok námskeiðs.

Forkröfur: Hafa lokið íslensku 3 eða búa yfir sambærilegri hæfni.

Lengd: 40 klst.

Verð: 55.700 kr. Hægt er að sækja styrki til flestra stéttarfélaga.


Hvenær: 25.mars – 17.mai 2025.

Tímasetningar: Þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar, kl. 19:20-21:20.


Hvenær: 20.maí – 3.júlí 2025.

Tímasetningar: Þriðjudagar, fimmtudagar og laugardagar, kl. 17:00-19:00 

Nánari upplýsingar: Hjá Katrínu katrin@framvegis.is eða í síma 581 1900.

Flokkar: Íslenska sem annað mál