Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Mjaðmabrot áhrifaþættir og afleiðingar - Stað- og fjarkennt

Fjallað verður um hvað einkennir þann hóp sem er í aukinni hættu á að mjaðmabrotna. Hvað við heilbrigðisstarfsmenn getum ráðlagt skjólstæðingum til að minnka líkur á mjaðmabrotum. Hvað þarf að hafa í huga við hjúkrun þeirra sem mjaðmabrotna. Afdrif eftir mjaðmabrot.
Um verður að ræða 3 kvöld sem skiptast niður í:
- Fræðsla ráðgjöf og forvarnir.
- Brotin og hjúkrunin, hvaða áherslur ættum við að leggja. 
- Hver er afdrif, líkur á seinna broti, lifun eftir mjaðmabrot.  

Leiðbeinandi: Sigrún Sunna Skúladóttir, doktor í heilbrigðisvísindum, Lektor við hjúkrunarfræðideild Háskóla Íslands. 
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 15 punktar

Staðkennt - 21., 22. og 24. október
Fjarkennt - 18., 19. og 20. nóvember

Flokkar: Símenntun Sjúkraliða