Á námskeiðinu verður fjallað um streitustjórnun og sjálfsumönnun í starfsumhverfi sjúkrunarstofnana.
Álag í starfi og einkalífi er óhjákvæmilegt, en hvernig við höndlum það ræðst að miklu leyti af persónuleika, hugarfari og viðhorfum. Margir eiga erfitt með að setja mörk og bæta stöðugt á sig verkefnum, sem getur leitt til streitu og kulnunar.
Markmið námskeiðsins er að veita starfsfólki verkfæri til að draga úr álagi og bæta eigin líðan. Fjallað verður um:
Námskeiðið samanstendur af fyrirlestrum, einstaklingsverkefnum og umræðum. Þátttakendur fá tækifæri til að spegla sig í öðrum og læra leiðir til að ná betra jafnvægi í lífi og starfi.
Leiðbeinandi: Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir M.S. félags- og vinnusálfræði. Framkvæmdastjóri & ráðgjafi hjá Hugarheimur ehf, www.hugarheimur.is.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 10 punktar
Fjarkennt 12. og 13. mars frá kl. 17:00-21:00