Flokkar: Símenntun Sjúkraliða

Sár og sárameðferð - Fjarkennt

Á námskeiðinu verður fjallað um líffræði húðar, gróningu sára, helstu tegundir sára, meðferð, umbúðir og eiginleika þeirra. Verkleg kennsla í umbúðalögum. Farið í áhættuþætti sem tengjast blóðsmiti og loks fjallað um það hvernig andlegir þættir geta haft áhrif á bata sjúklings.

Leiðbeinandi: Eyrún Ósk Guðjónsdóttir, hjúkrunarfræðingur á göngudeild skurðlækninga og Sáramiðstöð Landspítalans.
Námsmat: 100% mætingarskylda og virk þátttaka á námskeiðinu.
Punktar: 15 punktar

Flokkar: Símenntun Sjúkraliða