Lengri námsleiðir Framvegis eru ætlaðar fólki sem er 18 ára eða eldra og hefur ekki útskrifast úr framhaldsskóla, en það er markhópur í framhaldsfræðslunnar. Námsleiðirnar eru vottaðar af Menntamálastofnun og í flestum tilfellum er heimild til að meta námið til eininga í framhaldsskóla. Nám hjá okkur getur því verið góð leið fyrir þá sem vilja koma sér af stað í frekara nám, styrkja stöðu sína á vinnumarkaði eða efla sig persónulega.
Sameyki stéttarfélag í almannaþjónustu býður upp á námskeið og fyrirlestra fyrir félagsfólk því að kostnaðarlausu. Boðið er upp á fjölbreytta fræðslu, bæði stutta og lengri og á mismunandi tíma svo flestir finni eitthvað við sitt hæfi. Lágmarksfjöldi þátttakenda á hvern viðburð er oftast 12 en það er þó mismunandi eftir námskeiðum. Því er öruggast fyrir áhugasama að skrá sig sem fyrst.
Athugið að viðburðir í Gott að vita eru einungis fyrir félagsfólk Sameykis.
Um árabil hefur Framvegis átt gott samstarf við Sjúkraliðafélag Íslands um símenntun sjúkraliða.
Sjúkraliðanámskeiðin eru öll starfstengd og metin til launa fyrir stéttina.
Framvegis nýtur liðsinnis fagráðs við gerð og hönnun nýrra námskeiða og á í góðu samstarfi við aðrar símenntunarmiðstöðvar um námskeiðin.
Við hvetjum því þátttakendur sem eru á stórhöfuðborgarsvæðinu og nýta sér staðkennslu svo þeir sem ekki eiga heimangengt geti verið í fjarnámi.
Námskeið hjá Framvegis eru mörg hver kennd í samstafi við fyrirtæki og stofanir. Námsframboð sem birtist hér er ekki tæmandi og erum við sífellt að bregðast við óskum og þörfum þeirra sem til okkar leita. Þátttakendur geta komið úr ýmsum áttum og er markmið í hvert sinn að mæta öllum þátttakendum þar sem þeir eru staddir. Mörg námskeiðanna eru kennd á fleiri tungumálum en íslenslu, svo sem; spænsku, ensku, arabísku, pólsku, úkraínsku og litháísku.
Námskeið sem ekki eru dagsett fara af stað þegar fjöldi þáttakenda er nægur.
Ef þú hefur áhuga á samstarfi við okkur eða vilt frekari upplýsingar ekki hika við að hafa samband.
Framvegis er með námskeið í íslensku fyrir fólk af erlendum uppruna þar sem unnið er út frá námskrá menntamálaráðuneytisins. Boðið er upp á fjölbreyttar leiðir fyrir byrjendur og lengra komna þar sem áhersla er lögð á talað mál og tjáningu. Notaðar eru fjölbreyttar kennsluaðferðir sem æfa hlustun, ritun og lestur og verður málfræði fléttuð inn kennsluna.
Kennsla fer fram hjá Framvegis eða í fyrirtækjum og stofnunum þegar þess er óskað, einnig er möguleiki á fjarnámi.
Kennt er á ýmsum tungumálum, t.d. íslensku, ensku, úkraínsku, litháísku, spænsku og arabísku.
Frekari upplýsingar veitir Katrín Þorgrímsdóttir katrin@framvegis.is